Tuesday, February 14, 2006
Barcelona med mere

Og hefst tá ritunin.

Nuna er thridjudagskvøld og eg sit inni i stofu... Er threytt og svøng en nenni ekki ad fara fram i eldhus og fa mer ad borda. Skarri helmingurinn er vidsfjarri svo ekki get eg stolad a hann. Vidsfjarri og thad a Valentinusardaginn. Tho ad eg se mjøg anti-valentisk og anti-ameriskrahefdaisk tha finnst mer samt ad kallinn megi thjona manni a svona degi! Takk. Eg er hins vegar of løt til ad gera neitt fyrir hann.... hehe... Thad er rett svo ad eg nenni ad pikka inn a lyklabordid. Kannski ætti eg ad fa mer ad borda og hækka blodsykurinn.... hmmmm....

Eg er sumse komin aftur til København. Buin med friid a Islandinu goda. Buin med Barcelona. Komin "heim" (no offence - hitt "heimid"). Byrjud i skolanum.

Her er kalt. Oj hvad tad er kalt. Svo heyrir madur bara eitthvad grobb fra Islandi um hvad tad se gott vedur thar. Phiff... Her thyrfti madur helst ad vera i kraftgalla en thar sem madur byr ekki svo vel tha lætur madur kapuna duga... Og ef madur gloprast til ad gleyma einvherju af eftirfarandi: hufa, vettlingar, trefill - er madur nanast daudans matur!

Eg er i alvørunni samt ekkert svona bitur. Thad er alveg ædislegt ad vera herna! Mig vantar bara mat i mallann....

Svo er madur i landinu sem er midpunktur heimsathyglinnar. Arla mjolkurrisinn er i krisu af thvi ad utflutningurinn er ordinn ad engu og svo eru Danir lika hættir ad kaupa Arla vørur. Their eru vist bunir ad vera ad muta manni og ødrum uti um allan bæ....

Svo fekk eg sms fra einhverjum Gudmundi a Grund i sidustu viku sem tessu innihaldi: Muslimar snidganga danskar vørur. Bradum tharf Andres Ønd ad ganga i buxum og Andresina ad vera med slædu. Vid skulum taka malin i okkar hendur. Hættu ad skipta vid muslimska grænmetissala, pizzugerdarmenn og leigubilstjora. Ef tu er sammla sendu tetta sms afram.

Einmitt. Tetta er bara allt saman kebabmanninum a horninu gjørsamlega ad kenna. Folk er ekki i lagi....

 

Annars ætladi eg nu ad skrifa eitthvad sma um Barcelonaferdina. Thessi borg getur ekki verid meira ædi!

Ferdin var snilld, fyrir utan fyrsta daginn... Hann var ekki snilld. Hann var nefnilega osnilld.

Sjokk nr. 1 - kl. 04.34

Leigubilstjorinn sem keyrdi okkur ut a Kastrup kom korteri of seint ad sækja okkur. Vid natturulega ekki alltaf med vadid fyrir nedan okkur thannig ad vid vorum a nippinu med thetta... Hann hafdi vist bedid a næsta gøtuhorni i 10 minutur, vesalingurinn. Thar ad auki var tetta fyrsta vaktin hans thannig ad hann var ekki alveg viss um hvernig væri best ad komast ut a vøll. Mjøg gott. Ad lokum komumst vid tho ut a Kastrup, klukkutima fyrir brottfør....

Sjokk nr. 2 - kl. 05.02

Terminal 2: 1786 manneskjur (groflega aætlad) stodu i thvi mesta kaosi sem eg hef augum litid. Allir med farangurinn sinn uti um allt og allir ad flippa ur stressi og enginn med a hreinu i hvada rød hann var eda hvort hann var yfirhøfud i einhverri rød!!! Mun meira sjokk en sjokk nr. 1. Nett taugaafall myndi eg segja... Thegar eg var komin med magasar kom rødin tho loksins ad okkur. Vid nadum ad tekka okkur inn 15 min. fyrir brottfør med tau hughreystingarord (fra einum starfsmanninum) greipud i minnid ad engin vel færi fyrr en allir væru bunir ad tekka sig inn.... 5 min. fyrir flugtak vorum vid komin inn i vel.

Sjokk nr. 3 - um kl. 11.07

Lent i Barcelona! Thad sama vard hins vegar ekki sagt um farangurinn okkar. Hann vard eftir, eda for eitthvert annad. Lent farangurslaus i Barcelona! Konan i lost luggage sagdi okkur ad vid yrdum ad hringja i numer sem hun gaf okkur strax og vid vissum addressuna a hostelinu sem vid vorum a. Hun tok hins vegar vid nafninu a thvi en sagdist ekki geta sent farangurinn fyrr en hun vissi heimilisfangid. Gott og blessad....

Sjokk nr. 4 - kl. 11.45

Brjalud rigning og rok og ogediskuldi! Hef aldrei sed eins kuldaleg palmatre og thessi sem stodu fyrir utan flugstødina.... Svo sem ekkert storvægilegt sjokk, en bara gott ad bæta thessu a sjokklistann til ad lengja hann... I thad minnsta var thetta hvorki stemmnings- ne glediaukandi.

Eftir ad hafa farid inn a hostelid og fengid heimilisfangid, drifum vid okkur ut og hittum Alex, vin minn fra sidustu ønn her i Køben, og vin hans. Alex godi kom med sængurføt og teppi svo vid myndum ekki frjosa a hostelinu um nottina. Svo foru their med okkur a veitingastad thar sem vid fengum m.a. saltfisk - væntanlega islenskan!

Vid reyndum ad hringja i numerid sem lostluggagekonan gaf okkur en aldrei svaradi neinn. Huh... ekki gott mal.

Keyptum hin naudsynlegustu føt i Zøru og tannbursta, tannkrem og sjampo...  Gengum svo fotblaut heim a hostel thegar....

Sjokk nr. 5 - kl. 18.16

...atti ser stad. Saklaus med fullar hendur af pinklum og pokum var eg rænd (ok ha-ha - fyrir ykkur løgfrædinørdana - ekki i "lagalegri" merkingu)!! Einhver opruttinn seildist ofan i veskid mitt og stal peningaveskinu minu! An efa mesta sjokkid. Og ad thessu komst eg einmitt a theim timapunkti thegar eg var ad taka tøskuna mina nær mer til thess ad hinir illræmdu vasathjofar a Rømblunni sæju ser ekki leik a bordi. A thessu augnabliki voru mer allar bjargir bannadar. Vid drifum okkur inn a hostel og thar for eg barasta ad væla. Settist a rumid og vældi medan Ingvi hringdi og lokadi hinum ymsustu kortum. Thad var thad eina sem eg gat gert, gjørsamlega allslaus, blaut upp fyrir haus og svefnvana i oadladandi hostelherbergi i gamla bæ Barcelona. Aumingja Magga sin litla.

Lan i olani var ad their toku bara efsta hlutinn i veskinu minu og skildu myndavelina og simann eftir. Fjukket spukket. Svo atti eg ny falleg Zøruføt sem eg hafdi keypt a godum pris. Pollyanna.

Fleiri urdu sjokkin sem betur fer ekki. Vid vorum buin ad "hitta rock bottom" og nuna gat thetta adeins ordid betra. Daginn eftir (sunnudag) reyndum vid og reyndum endalaust ad hringja i numerid goda og øll hugsanleg numer sem gætu hjalpad okkur en enginn vildi hjalpa okkur ("no sorry, no... can no help.... no bæbæ" tha hugsadi madur hversu vanthroad thetta land væri...) og aldrei svaradi neinn i numerinu. Vorum ordin of pirrud ad thessari situasjon thannig ad vid akvadum ad gefa skit i thetta og fara ut i solina!

Thegar vid komum svo heim a hostel sidla kvølds, eftir pøbbarølt i Gracia-hverfinu med Alex og vinum hans, stod allt i einu farangurinn okkar i mottøkunni! Duttu tha allar daudar lys a golfid. Surrealiskt moment. Thetta gatu their tha! Fundid adressu a einu hosteli upp a eigin spytur og sent okkur farangurinn thangad! Thegar vid høfdum ekki minnstu tru a ad teir gætu thad!

Svo skein solin enntha meira og hlynadi og vid røltum ut um allan bæ ad skoda alt muligt... Døgunum eyddum vid i ad vera menningarleg og kvøldin foru oftast i thad ad vera med Alex og vinum hans sem var mjøg skemmtilegt!

Vid flippudum alveg i arkitekturnum, tha serstaklega modernistastilnum, sem einkennir Barcelona. Forum i helstu Gaudi-byggingarnar (snillingur hefur thessi madur verid!!!): Casa Batllo, Casa Mila, Sagrada familia kirkjuna (eitt thad merkilegasta hus sem verdur byggt fyrr og sidar), fallega gardinn Park Guell og fleira og fleira. Skodudum lika gotneska hlutann (gamla bæinn) og domkrikjuna thar og olympiubyggingarnar a Monjuic-fjallinu......

Tokum lika godan skerf af søfnum. Børdum Picasso, Dali og Miro augum og vorum sammala um ad Dali-safnid væri best af thessum - allir ad fara thangad (thad er lika i litlum sætum bæ sem Alex er meira ad segja fra!).

Alex, thessi elska, baud okkur gistingu fra og med thridjudeginum (thegar medleigjandi hans for til utlanda) thannig ad vid vorum hja honum i 5 nætur. Ekkert sma huggulegt og skemmtilegt! Greyid hann var samt i midjum proflestri en var tho alltaf til i ad gera eitthvad skemmtilegt og duglegur ad kynna okkur fyrir katalonskum mat, menningu og tugumali...  

Svo vid komum aftur til København sæl med ferdina (ja, audvitad fyrir utan fyrsta daginn)....

Gisli og Arni komu til okkar a føstudaginn og foru i dag. Var ekkert sma gaman ad hafa thessa gutta herna hja okkur. Efndum til teitis a føstudaginn i tilefni thess ad gitarspilarar miklir væru mættir a svædid. Vard mikid fjør ur teitinu thvi. Og annad teiti var svo a laugardaginn i tilefni undankeppni Danmerkur fyrir Eurovision. Okkur fannst nu løgin ekki upp a marga fiska en voda sæt ljoshærd kurekastelpa med dansara i hvitum kurekaføtum vann keppnina. Ætli madur haldi ekki med henni ef frøken Nott rustar thessu ekki heima.... og Eurovision sjalfri....

Garnagaulid er ordid of hatt.

Lykur her med rituninni.


Posted at 06:08 pm by Magga
Comments (8)

Monday, February 13, 2006
thetta er allt ad koma

...tølvan og netid komid í lag og gestirnir mínir gódu fara á morgun thannig ad thá skal ég sko blogga! ;)


Posted at 04:56 pm by Magga
Comments (1)

Thursday, January 19, 2006
. . . . . . . . . . . .

Allt í einu er bara vika þangað til ég yfirgef landið mitt góða! Allt í einu er líka ótrúlega mikið sem ég á eftir að gera á þessari viku! Skil ekki hvernig þetta getur endað svona!!

Búin að vera upptekin við að hitta mann og annan.... Fór í saumóz á sunnudaginn og hitti menntóvinkonurnar, Lars á þriðjudaginn og hitti gömlu Köbenvinkonurnar, kökuboð hjá Röggu í nýja húsinu hennar í gær og hitti þar lögfræðivinkonurnar og svo í afmæli hjá litlu frænku minni í gær þar sem ég hitti fjölskylduna.

Mér var illt í maganum í gærkvöldi.....

Á morgun er svo fyrsti og eini og kannski síðasti kokteillinn sem ég fer í með lögfræðinni! Maður verður nú að kíkja í einn svona fyrir old times sake... Þeir hafa nú verið ófáir blessaðir kokteilarnir undanfarin árin - var t.d. komin með svo mikið nóg af þeim í fyrra að ég held ég hafi farið í einn teil það árið... En það verður fjööör á morgun!


Posted at 12:51 pm by Magga
Comments (6)

Wednesday, January 11, 2006
gleðilegt ár!

Kom sá dagur að Margréti fannst kominn tími til að blogga.

Jólin liðin og komið nýtt ár...

Jólin voru yndisleg, full af góðum mat, hyggestundum með fjölskyldunni, svefni og leti. Nokkur góð jólaboð voru auk þess á dagskránni, alveg fram yfir þrettándann!

Ginga mín, kennarinn nýbakaði, hélt útskriftarveislu milli jóla og nýárs og vinkonuhjartað mitt var afar stolt af sinni elskede.

Áramótin voru sérdeilis skemmtileg og heldur óvanaleg fyrir mig þar sem ég eyddi þeim í fyrsta skipti fjarri fjölskyldunni. Ég fór nefnilega í bryllupsveislu í Árbænum, hjá þeim öðligshjónum Einari og Margréti.

Það er náttúrulega frábært að hitta allt góða og fallega fólkið mitt hérna heima. Margar góðar stundir með vinum. Markmiðið er að hitta alla og hitta þá sem oftast áður en ég fer aftur út. Tongue

Já, svo fer ég barasta til útlanda daginn eftir að ég kem "heim" til Danmerkur. Styttist óðfluga í Barcelonaferðina okkar Ingva! Skróp í skólanum í viku fyrir menningarreisu suður á honum Spáni...

Svo mörg voru þau orð að sinni. 

 

 


Posted at 10:50 am by Magga
Comments (2)

Friday, December 23, 2005
gaman

- að vera komin í jólafrí

- að vera komin til Íslands

- að Þorláksmessa sé á morgun

- að jólin séu að koma!

 

Gleðileg jól og heillaríkt komandi ár!

 

Knus,

Magga.

 


Posted at 01:32 am by Magga
Comments (2)

Thursday, December 01, 2005
gledipistill

Hef reyndar alls ekki tima til ad blogga... A eftir ad lesa svo otrulega mikid i dag til ad halda i skottid a mjøg svo stifu lestraraætlun minni (sem vard einmitt svo stif af tvi ad eg er buin ad vera alltof god vid mig... hihi (eda bara ekki "hihi" - tetta er grafalvarlegt mal!))......


Eins og Hjalmar segja: "tett'er ekkert mal, vid reddum tessu saman". Tad er mottoid mitt i tessum proflestri.


Eg lifi bara fyrir tad ad hlakka til. Tad er svo margt sem eg get hlakkad til tessa stundina (kannski af tvi tad tarf svo litid tilhløkkunar efni tegar madur er i stofufangelsi proftimabilsins...)! Svo eg nefni dæmi ta hlakka eg til:
  • ad klara planid i dag (reyndar tregablandin tilhløkkun tar sem tad tekur bara annad eins vid a morgun... og hinn og hinn og hinn og hinn....)
  • ad Inga Huld og Rakel komi i mat til min a laugardagskvøldid! Jeij! Inga Huld er i nokkurra daga Kaupmannahafnarreisu og vid ætlum ad sjalfsøgdu ad nota tækifærid og halda "mini-lars"
  • ad tengdo komi til Køben tvi ta faum vid potttett godan mat, godan felagsskap (ekki tad ad eg se i slæmum felagsskap annars...), faum afsøkun til ad læra ekki og getum jule-hyggad okkur!!
  • ad fara a jolatonleika Støku i næstu viku. Iiiha, serstaklega gaman tar sem eg tekki halfan korinn! ;)
  • ad profdagarnir trir (12., 13. og 14. des. - serlega skemmtilegt ad hafa svona tetta profdagskra!) verdi yfirstadnir og eg komist i JOLAFRI!
  • ad hitta alla vini mina (tegar eg er komin i fri) sem eg hef ekki getad hitt af tvi ad eg er svo otrulega dugleg ad læra....
  • ad fara nidur i bæ ad kaupa jolagjafir! Oh jolastemmning! Vei!!
  • sidast en ekki sist hlakka eg til ad fara HEIM og knusa alla heima!! :):):)

Iiiisk hvad tetta er godur listi! Vitaminsprauta fyrir aframhaldandi lestur!

Annars er eg lika buin ad gera fullt af skemmtilegu undanfarid, ekki bara verid med nefid ofan i bokunum! Er t.d. buin ad vera med annan fotinn a Vega, alltaf tonleikar tar! For ad sja Apparat fyrir tveimur helgum og Mugison um sidustu helgi. Mugison er ædi. Ædi gædi. Svo er eg buin ad fara i matarbod og kaupa sjonvarp og panta ferd til Barcelona og svona!

Ok. Tetta er ordid of jakvætt herna.... Ælta ad fara ad verda alvarleg og stressud aftur...... :P

Barattukvedjur til allra sem eru i proflestri!!
m


Posted at 02:09 pm by Magga
Comments (3)

Friday, November 25, 2005
....

Ég er loksins loksins búin með ritgerðina sem ég er búin að vera að vesenast með í viku. Þetta var samt mjög áhugavert efni. Ég er eiginlega komin með "unaccompanied and separated refugee children" á heilann, ég er búin að lesa svo mikið um flóttamenn og bágstödd börn að ég er næstum komin með annan fótinn til Afríku til að hjálpa til... Það getur verið átakanlegt að lesa um hvað margir eiga erfitt líf, heimasíða UNHCR (Flóttamannaaðstoðar SÞ) er uppfull af efni sem maður getur gleymt sér í tímunum saman.

Maður fer að hugsa um hvað maður er "ignorant" þegar maður heyrir fréttir af einhverju stríði í Afríku. Þetta er svo langt í burtu að leiðir hugann næstum ekkert að því. Það er líka sláandi hvað alþjóðsamfélagið lætur oft lítið til sín taka, svo ég nefni eitt dæmi: Borgarstyrjöldin í Rwanda. Allir vissu að Hutuar voru að fremja þjóðamorð á Tutsum, en samt var litið á þetta sem "innanríkisdeilur" og SÞ pössuðu sig á því að nota ekki orðið "þjóðarmorð" því þá hefði þeim borið skylda til að gera eitthvað í málinu. Það er engin olía í Rwanda... ætli það sé ekki þess vegna sem ráðamönnum heimsins var svona sama?
Já, og hvað gerðist eiginlega í Kongo?

Ég horfði á mynd í tíma á mánudaginn um eftirleika stríðsins í Rwanda. Það er ekki hægt að setja það í orð hvað þetta hefur verið hræðilegt stríð. Slátrun. Slátrun á saklausu fólki.
Þetta voru nágrannar að drepa nágranna sína: Jón í næsta húsi drap öll börnin hans Guðmundar hérna á móti. Hann dró þau út úr húsinu þar sem þau földu sig og barði þau til ólífis með kylfu fyrir framan húsið. Bara af því að þau voru Tutsar en ekki Hutuar.....
Svo þegar fólkið hafði flúið inn á fótboltavöllinn og þeir skutu það allt. Drápu það allt. Létu kúlunum rigna yfir það. Það sást ekki í grasið eftir skothríðina. Það eina sem sást var dáið fólk og blóð.

Þetta var allt runnið af rótum haturs, haturs sem leiddi til heilaþvottar, heilaþvottur sem leiddi til múgæsingar....

Held ég láti þetta nægja um stríðið í Rwanda.... Mér er orðið illt í hjartanu af því að hugsa um þetta.

Ég mæli með Hotel Rwanda og Men in Pink við alla. Veit ekki hvar maður getur séð þá síðari, en það var myndin sem ég sá í skólanum.
Svo mæli ég líka með þessi grein á redcross.is. Skylda að lesa hana.

Núna ælta ég að fara að læra fyrir prófið í International Protection of Refugees.


Hvað ætli sé annars að gerast í Írak í dag??

Posted at 11:05 am by Magga
Comments (4)

Monday, November 21, 2005
boybands extra

....svona af thví ad ég er tilneydd í svona mikla boyband-stemmningu thessa dagana:


Posted at 12:50 pm by Magga
Comments (1)

Thursday, November 17, 2005
best of boybands 1990-2000

...er thad sem ég gæti haldid ad væri uppáhaldsplata nágranna minna, th.e.a.s. ef slík plata er thá til. Hef sem sagt komist ad thví ad thad er bærilega hljódbært hérna i húsinu, eitthvad sem madur tekur samt engan veginn eftir nema madur sitji sjálfur í thungum thønkum í thøgninni.

Thar sem ég geri lítid annad thessa daga en ad sitja i thøgninni og reyna ad staulast fram úr løgfrædibókmenntum a ensku hef ég, mér
- til frekar mikillar furdu
- eilitillar kátinu
- nokkurs pirrings
komist ad thvi ad Nordmennirnir fyrir ofan mig eru einlægir addáendur drengjasveita. Bassinn i gømlum Back Street Boys smellum o.fl. "eyrnayndi" dynur og líklega syngur kátur Nordmadurinn med. Ég fer ad sjalfsøgdu lika ad humma med, thar sem thessi løg eru tonnatakslím á heilann!

Núna er bara spurningin hvort thad er
- stelpan
- strákurinn
- eda tau bædi
sem heillast svona af thessari thýdu mjúsík.....

Kannski ég bjódi mér í kaffi til theirra næst thegar ég heyri hina (einum of) ljúfu tóna til ad komast ad sannleikanum um thad....

Posted at 05:49 pm by Magga
Comments (2)

Thursday, November 10, 2005
Góðan og blessaðan!


Dimmt fimmtudagseftirmiddegi hér. Það er farið að dimma svo órtrúlega snemma hérna! Ég kom út úr tíma kl. 4 og þá var farið að rökkva slatta mikið! Núna er klukkan orðin 6 og aldimmt! Þegar maður er að falla í eitthvað skammdegisþunglyndi þá er nú betra að rifja upp eitthvað skemmtilegt... Ikke osso? ;)

Ég er nú búin að vera að gera svo ótrúlega margt skemmtilegt, ha. Um síðustu helgi var þétt dagskrá, ojá. Vinnan hans Ingva kom hingað í árshátíðarferð og það var ekki leiðinlegt. Kíktum í Carlsbergsafið á föstudaginn, sem var líka snestorm-dagurinn, þ.e. þá kom Tuborg-jólabjórinn út! Það var s.s. stemmning í fólki og nokkrir sem við sáum búnir að kaupa sér alklæðnað fyrir kvöldið í samræmi við þemað!
Við misstum samt af því þegar jólastrætóinn með brjáluðu bjórdreifandi jólasveinunum þaut á milli kránna af því að við vorum að ofsalega fínni árshátið á ofsalega fínum veitingastað. Þetta var svona spænskur staður þannig að tapas og fleira spænskt var á borðum. Lekkert mjög.

Svo kom laugardagskvöldið.
Sálin á Vega.
Ó

GOD.
Ég bjóst við stemmningu en ekki svona miklu, gæsahúð frá 1. mínútu og til þeirrar síðustu! Ég var í nostalgíukasti. Þeir eru bara einfaldlega snillingar.
Snillingar.

Svo var líka fullt af skemmtilegu fólki á ballinu, fyrir utan árshátíðarhópinn sem var í banastuði, voru Rach og Himmi mjög kát og Elva og Ásta systir hennar i essinu sínu, og svo allskonar fólk sem ég hafði ekki séð í ár og öld!

Jájá... svo kom reyndar mánudagur og þá þurfti ég að fara að læra...
Ritgerðarvinnan blessaða. Það er ótrúlegt hvað þessar aumu 7 blaðsíður voru lengi að fæðast! Samt búin að skila núna. Guði sé lof.
Grúppufundur í heimsins ömurlegustu grúppu. Ö... ok bara helmingurinn mættur.... enginn veit hvað hann á að gera né um hvað þetta er.... ö gerum þetta bara í sitthvoru horninu og höfum svo msn-fund kl. 5 á sunnudaginn og ræðum um þetta. Ok. Brjálad gaman! Þetta verður besta presentation i heimi á mánudagsmorguninn! Vei.

Annars átti hún Sólveig mágkona afmæli í gær! Hún var með ótrúlega fínt kökuboð í litlu íbúðinni sinni. Mjög góðar veitingar og vá hvað ég borðaði aðeins yfir strikið.... hehe....

Jæja, þetta er komið gott.....

Posted at 05:29 pm by Magga
Comments (4)

Next Page


agnes
arnór
bensi
dröfn og kiddi
edda kata
elva
halli
hjörtur
ingvi
kata
maría
ragnheiður ásta
svana
vala
zimsen

saumóz
lars
studjuris

háskólinn
orator
københavns universitet


   


<< December 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31

Blogdrive